Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði
Forsvarsmenn leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR) segja umfangsmikla rægingarherferð gegn stofnuninni í gangi. Það er eftir að til skotbardaga kom á milli starfsmanna GUR og starfsmanna Öryggisstofnunar Úkraínu (SBU) á götum Kænugarðs í gær. Vólódímír Selenskí, forseti, hefur fordæmt atvikið, sagt upp einum af forsvarsmönnum SBU og krafist þess að skotbardaginn verði rannsakaður ítarlega.
Sjá allt — visir.is →Safnað frá helstu fréttastofum landsins. Hver frétt tengist upprunalegri heimild.







