Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á ljósastaur
Sjö voru flutt á slysadeild eftir að bifreið var ekið á ljósastaur.RÚV / Ragnar Visage Sjö voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir að bíl var ekið á ljósastaur við bensínstöð Olís í Norðlingaholti í ellefta tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega. Einn dælubíll og fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, að sögn slökkviliðsins.
Sjá allt — RUV EN →Safnað frá helstu fréttastofum landsins. Hver frétt tengist upprunalegri heimild.







