Rafmagnsleysi í Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og á Kjalarnesi
Rafmagnslaust er í Úlfarsárdal, Grafarholti, Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Veitna . Rafmagnsleysið getur haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni. „Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á sem fyrst, en bilunin er inni í aðveitustöð við Korpu. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur,“ segir þar.
Sjá allt — RUV EN →Safnað frá helstu fréttastofum landsins. Hver frétt tengist upprunalegri heimild.







