Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandi
Sex eru slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fjóra til aðhlynningar í Reykjavík, þar af tvo alvarlega slasaða. Þ
Sjá allt — RUV EN →Safnað frá helstu fréttastofum landsins. Hver frétt tengist upprunalegri heimild.







