Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler
Ég hef einu sinni flutt tónsmíð sem nefnist Fjórar mínútur og þrjátíu og þrjár sekúndur eftir John Cage. Það var létt verk og löðurmannlegt. Ég gekk bara fram á sviðið í fínum jakkafötum, settist við stóran flygil og beið. Þegar vandræðalegt flissið í áhorfendum var orðið ærandi stóð ég upp, hneigði mig og gekk út. Og fékk tíu þúsund kall fyrir.
Sjá allt — visir.is →Safnað frá helstu fréttastofum landsins. Hver frétt tengist upprunalegri heimild.







